Andervel og JóiPé sendu á dögunum frá sér myndband við lagið Faðmaðu mig. Lagið kom út á stuttskífunni Noche sem mexíkóski tónlistarmaðurinn Andervel, öðru nafni José Louis Anderson, sendi frá sér í október 2020.
José á hugmyndina á bakvið myndbandið og leikstýrir því í samstarfi við tökumanninn og ljósmyndarann Patrik Ontkovic. Í myndbandinu er tekist á við nýjan veruleika og þörfina fyrir snertingu og nánd, í samhengi við heimsfaraldur. Pólska leikkonan Magdalena Tworek leikur á móti José í myndbandinu og semur að auki kóreógrafíuna.
Platan er unnin í nánu samstarfi við Sóley Stefánsdóttur tónlistarkonu, en hún var leiðbeinandi José á tónsmíðabraut við Listaháskóla Íslands.
Umræðan