Tónlistarkonan Karítas var að senda frá sér lagið Shame og er lagið aðeins öðruvísi “take” á ástarlagi sem snýst um höfnun og skömm, textinn segir sig svolítið sjálfur.
„Þetta eru hráar tilfinningar sem að snúast um að vilja leita í gamlann elskhuga en hann á erfitt með að líta á mann með sömu augum ef maður hefur verið með öðrum í millitíðinni” segir Karítas.
Þetta er fyrsta lagið af komandi breiðskífu. Lagið er pródúserað af Dadykewl en hann á röddinaí byrjun lagsins sem segir „svara símanum og ég segi bless.” Karítas samdi lagið í fyrra en þá fékk hún tækifæri til að horfast í augu við gamlar tilfinningar, sem stundum eiga það til að hanga í fólki. „Mér þykir mest vænt um þetta lag af þeim sem ég hef samið” segir Karítas að lokum.
Umræðan