Surf rokk tríóið Zak and the Krakens koma til landsins og spila tvenna tónleika í miðbæ Reykjavíkur.
Þeir fyrri á Kex hostel þann 10.október þar sem sveitin leikur blöndu af eigin lögum og klassíksum surf hitturum. Þeir seinni verða á Gauknum ásamt Kul og Flavor Fox þann 12.október.
Zak and the Krakens er 1/3 íslenskt tríó sem er starfrækt í Kaupmannahöfn. Trommari sveitarinnar, Steinar Guðjónsson, hefur verið virkur í íslensku rokk og jazz senunni í fjölda ára sem gítarleikari með sveitunum Coral, The Pogo Problem og Not a Crook.
Umræðan