Elín Ey sendi nýverið frá sér lagið Áður fyrr sem hún samdi upp í sveit á gítarinn sinn snemma árs 2013. „Lagið fjallar um það þegar maður áttar sig á því að maður eigi ekki samleið með einhverjum lengur.”
Lagið er undir áhrifum frá RnB tónlist en Elín segist snemma hafa viljað stýra laginu í þá átt. „Ég fann laginu ekki réttan farveg fyrr en nokkrum árum seinna þegar ég fór með það til bróður míns Bleache sem er stórkostlegur pródúser og tónlistarmaður.“
Bleache útsetur lagið ásamt Elínu eins og öll önnur lög sem eru væntanleg frá henni.
Elín Ey á Instagram
Umræðan