Salóme Katrín er ung söngkona og tónskáld frá Ísafirði sem var að senda frá sér lagið „Don’t take me so seriously” („Ekki taka mig svona alvarlega”). Lagið er það fyrsta sem kemur út af væntanlegri stuttskífu Salóme Katrínar, WATER, sem mun birtast í verslunum og vonandi í útvarpi með vorinu en það er komið á allar helstu streymisveitur.
Í Don’t take me so seriously biðlar Salóme til hlustandans að taka sig ekki of alvarlega, hún er bara eitthvað að spá. Það á sér rætur í dægurtónlist allra tíma, samið af kunnáttu og leikgleði. Yfir vötnum svífur andi Reginu Spektor og hennar einlægu mansöngva, en einnig má heyra óm af einbeittum tilfinningaleik Kate Bush. Þessa áhrifavalda, auk annarra, má greina með góðum vilja, en engu að síður eru þau áhrif á ská og skjön, úr fjarlægð – hér er heimurinn upplifður frá jaðrinum, eins og hann kemur fyrir sjónir í skugga snjóugra fjallstinda. „Ekki taka mig svona alvarlega,” syngur Salóme Katrín um leið og hún geislar tilfinningum og opnar hlustandanum innsýn í hugarheima sína.
Salóme Katrín nýtti æsku sína á Ísafirði, með öllu sínu frelsi og frítíma, til hins ýtrasta. Heltekin af tónlist eyddi hún dögunum í að stúdera og rannsaka tónlist af öllum gerðum, vopnuð þéttpökkuðum 160gb iPod Classic. Af andakt kynnti hún sér tónskáld og tónlistarfólk sögunnar, allt frá Chopin til Ninu Simone til Kanye West og Joni Mitchell og allt þar á milli. Þegar hún var ekki límd við iPodinn æfði hún svo ballet, píanó og söng í þartilgerðum stofnunum, sem Ísafjörður státar af.
Síðan hún hóf að flytja eigin tónlist fyrir almenning á síðasta ári hefur þessi 24 ára listakona hlotið mikið lof frá aðdáendum tónlistar sem fagfólki í stéttinni, hennar góði orðstír fer vaxandi hvar sem hún kemur við, hvort heldur er á sviði öldurhúsa, stofutónleikum, menningarstofnunum eða hátíðum á borð við Aldrei fór ég suður. Líkt og áður sagði mun fyrsta opinbera útgáfa hennar, lagið Don’t take me so seriously, sigla öldur ljósvakans frá og með föstudeginum 13. mars, en EP skífan WATER er væntanleg á 12″ vínyl og stafrænum miðlum undir lok aprílmánaðar.
Umræðan