12 Tónar hefja sumardagskrá sína um helgina með tónleikum í garðinum á föstudaginn kl. 17.00.
Það er kraftmikla rokkbandið Skoffín sem ríður á vaðið og auðvitað er ókeypis og allir velkomnir. Í kjölfarið munu hinir einu sönnu DJ son Derulo sjá um fjörið. Á laugardaginn verður almenn gleði í garðinum og um kvöldið spilar enginn annar en Stoney Flex aka Steinar Fjeldsted fyrir gesti fram eftir kvöldi.
Garðurinn hjá 12 Tónum er frábær viðbót við tónleikaflóru Reykjavíkur en hann er alltaf opinn fimmtudag-laugardag frá 10:00 – 23:00. 12 Tónar hafa staðið fyrir tónleikum í garðinum sínum allar götur frá 2001 en í sumar verða tónleikar alla föstudaga kl. 17.00. Laugardagar verða markaðsdagar með tilheyrandi afslappaðri stemningu og grilli.
12 Tónar á Facebook
Viðburðurinn á Facebook
Umræðan