Með laginu Apríkósur minnir Ari Árelíus þig á að staldra við og fá þér ávexti. Þversögnin sem felst í því að elska það sem þú nú þegar hefur kemur upp í hugan.
Á íslandi er frekar stutt síðan fólk gat almennt fengið sér ávexti. Fólk man enn eftir því hvernig epli voru munaður sem var aðeins hægt að njóta á jólunum. Í okkar kapítalíska samfélagi þar sem stanslaust er verið að reyna lokka okkur yfir í græna grasið hinum megin við lækinn getur mikil róttækni falist í því að unna sáttur við sitt. Að einbeita sér að litlu hlutunum eins og að njóta fegurð litríkra ávaxta.
Hreiðar Már Árnason spilar á trommur, Snorri Skúlason á bassa, Inga Höskuldsdóttir og María Björt Hjálmarsdóttir syngja bakraddir, Róbert Aron Björnsson stjórnar upptökum og Guðfinnur Stefánsson málaði forláta apríkósu mynd.
Umræðan