Fyrsta plata Stafræns Hákonar kom út á eigin vegum árið 2001. Platan þótti gróf og tilraunakennd enda hljóðrituð á fjögurra rása kassettutæki í kjallaraherbergi í Breiðholtinu.
Margt hefur breyst á þessum 18 árum sem Stafrænn Hákon hefur verið starfrækur. Tíu stórar plötur hafa litið dagsins ljós og nú er sú ellefta orðin staðreynd. Aftur er þeirra metnaðarfyllsta verk hingað til þar sem fimm núverandi meðlimir hljómsveitarinnar leggja hönd á plóg.
Eftir að hafa gefið út sönglausu (e. instrumental) plötuna Hausi árið 2017 var ákveðið að húða músíkina mýkri hljóm og sækja á ný í söngbarka flokksins. Niðurstaðan er 10 laga afurð þar sem sex þeirra eru sungin á íslensku og eitt á erlendu tungumáli. Þeir sem eru kunnugir hljómum sveitarinnar ættu ekki að vera lengi að kveikja á perunni því hér er vandað til verka og unnið með mjög svo dýnamískan hljóðheim þar sem rafgítarar sveima um ásamt óm-miklum píanóleik og akústískum hljóðfærum þar sem kröftugt slagverk og hnausþykkur bassaleikur knýr tónlistina áfram.
Magnús Freyr Gíslason syngur fimm lög á plötunni eins og sannur innanhússarkitekt. Gestasöngvarinn Benedikt Hermann Hermannsson (Benni Hemm Hemm) skýtur fyrir í einu laganna og Hollendingurinn Minco Eggersman ljær einu laginu barkann sinn. Það eru sem fyrr Ólafur Örn Josephsson, Árni Þór Árnason, Lárus Sigurðsson, Róbert Már Runólfsson og Magnús Freyr Gíslason sem skipa sveitina Aftur. Saman hefur þeim tekist að sjóðasaman sitt allra sterkasta og heilsteyptasta verk hingað til. Glöggt má heyra hvernig þeim tekst að blanda saman ólíkum tónlistarstefnum svo úr verður einstakur hljóðheimur sem ætti að gleðja víðan hóp tónlistarunnenda.
Umræðan