„Beast in My Bones” er fyrsta lagið sem hljómsveitin Sycamore Tree sendir frá sér af EP plötu sem kemur út í ágúst og er hliðarverkefni stóru plötunnar sem kemur út í haust þar sem sveitin er að fókusa á köntrý ástríðuna sína.
„Við eru búin að vera að klára stóra plötuna okkar sem kemur út í haust og höfum sent frá okkur „Wild Wind” og „Fire” sem eru einmitt tekin af henni. Síðasta vetur þá fór einvernvegin að troða sér inn meiri og meiri köntrý stemning hjá okkur” segir Gunni.
Sveitin hefur verið að vinna að stóru plötunni með Rick Nowels í Los Angeles og Arnari Guðjóns hér heima. Svo kom inn í mengið Þorleifur Gaukur Davíðs síðasta vetur. Hann er pedal steel spilari og munnhörpu leikari og gítarleikari. „Við áttum til á lager seríu af lögum sem pössuðu ekki beint á stóru plötuna en stóð vel ein og sér. Við ákváðum því að setja allt köntrýið á EP plötu sem kemur líka út í haust. Við erum bæði mikið köntry fólk. Þetta er kannski bara Sycamore kön-Tree” bætir Gunnar við.
Beast in My Bones fjallar um tvo einstaklinga sem eiga í sambandi en draga það versta fram í hvert öðru og er mikil barátta í gangi. Samband sem er ástríðufullt en dramatískt og ekki heilsusamlegt ! Hljómurinn er svona “ spaghetti “ vestra stemning með “ dash “ af Tarantino enda veröld sem þau Águsta Eva og Gunni þekkja vel.
Lagið var einmitt frumflutt á tónleikum þeirra í Fríkirkjunni febrúar og var kór Bartóna, Kór Kaffibarsins með þeim þar í laginu og sú útgáfa tekin svo upp núna í mars og apríl. Arnar Guðjónsson útsetur og spilar á Gítar, Bassa, Trommur og hljómborð og Þorleifur Gaukur spilar á Gítar, Pedal Steel Gítar og Munnhörpuna svona líka snilldarlega vel.
Umræðan