Hljómsveitin Spacebreaker hefur gefið út sýna fyrstu hljómplötu, Blast, en hún var próduceruð af Alexander Erni bassafanti The Vintage Caravan. Platan er EP og er stutt en kröftug og orkumikil alveg frá upphafi til enda.
„Okkur langaði til að reyna að fókusa á að það væri “gaman” að hlusta. Að fólk gæti sungið með og verið í stuði.”
„Platan er okkar tilraun til að búa til partý rokk. Það er nóg af hljómsveitum þar sem allir eru illa nettir með skeifu, þetta er ekki þannig. Þetta er bara high energy keyrsla sem að fólk hefur vonandi gaman af.”
Spacebreaker liðar hafa einnig verið að vinna að tónlistarmyndbandi sem kemur út þann 6. Ágúst. Platan er nú þegar aðgengileg á öllum netmiðlum en til stendur að gefa út hard copies síðar þegar tónleikahald fer á fullt á ný.
Umræðan