Tónlistarkonan MSEA var að senda frá sér nýtt lag sem heitir It´s got a little ring to it. Líkt og önnur lög af plötunni Our daily apocalypse walk, er lagið innblásið af draumadagbók MSEA sem hún hélt í COVID 19 faraldrinum. Líkt og draumarnir er tónlistin þokukennd og torræð, en mannleg skelfing og ógn sýndarveruleikans er ekki langt undan.
Lagið „It’s got a little ring to it” einkennist af kraftmiklum trommuleik ásamt loftkenndum hljóðgervlum. Söngur MSEA svífur ískalt yfir vötnum “I like the way we sound / How it floats around my mouth / How it twists around my tongue / And it tangles all around” í senn bæði spámannslega og viðkvæmur.
„’Having a ring to it’ minnir hlustandann á að oft er hljóð, setning eða hugmynd heillandi fyrirbæri” útskýrir MSEA.” „Hér er það hugmyndin um ást milli tveggja einstaklinga. Sönn og sjaldgæf ást þar sem óttinn við að týna henni, sjálfsefi einstaklinganna og þakklæti til hvors annars blandast allt saman.
Umræðan