Fyrir stuttu kom út lagið Sofðu vel, sem er fyrsta lag Járnrósar. Tónlistarmaðurinn á bak við Járnrósar verkefnið er Jón Jódísarson, gítarleikari og söngvari Velvet Villain.
Jón byrjaði að vinna að verkefninu árið 2018 í Stúdíó Hljóðverk, en sagðist sjálfur aldrei hafa verið viss um hvort hann myndi gefa efnið út. Hins vegar hafi honum þótt tilefni til þess eftir fráfall bróður hans, Mikaels Más, nýverið en Mikael notaðist einmitt við nafnið Járnrós.
Fylgstu með Járnrós á Facebook
Umræðan