Tónlistarmaðurinn Magnús Gunnarsson aka Amoji var að senda frá sér lagið „Me With Out You” en það er unnið í samstarfi við söngkonuna Lola Rhodes.
Magnús og Lola eru bæði búsett í Los Angeles en Lola er ansi stórt nafn þar ytra og er t.d með yfir 40 milljón spilanir á Spotify.
Magnús og Lola sömdu lagið saman en Magnús sá um pródúseringu. Margt er framundan hjá Magnúsi, annað lag með Lolu er í vinnslu ásamt fleiri lögum. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á lagið og mælir Albumm klárlega með því!
Umræðan