Snjór er ávísun á leiðindi: á rofna útsendingu, á viðtæki utan þjónustusvæðis, fjarri mannabyggðum. Gegnum élin glittir þó í litríkt og furðulega fagurt landslag.
Á nýrri sýningu heldur Atli Bollason áfram að bjaga og skæla sjónvarpssnjó með skapandi merkjavinnslu. Að þessu sinni bætir hann aðkeyptu kínversku handverki við merkjakeðjuna og sýnir röð olíumálverka.
Opnun sýningarinnar er á safnanótt þann 7. Febrúar næstkomandi kl 18:00-23:00. Sýningin fer fram í Gallerý Port og stendur til 16. febrúar.
Hér fyrir neðan er hægt að hlýða á lagið Verum í Sambandi með hljómsveitinni Sprengjuhöllinni en Atlo Bollason var einmitt í þeirri hljómsveit:
Gallery Port á Facebook
Umræðan