Tvítuga tónskáldið og píanóleikarinn Gabríel Ólafs var að gefa út sína fyrstu plötu en hún ber nafnið AbsentMinded.
Platan er því aðgengileg unnendum píanótónlistar um allan heim í gegnum helstu streymisveitur á borð við Spotify og iTunes. Platan kemur einnig út á vínyl og geisladisk á fjölmörgum markaðssvæðum, en það er breska útgáfufyrirtækið One Little Indian sem stendur að úgáfunni. Gabríel skrifaði undir plötusamning hjá fyrirtækinu í fyrra en það hefur meðal annars gefið út tónlist Bjarkar um árabil og einnig nokkurra fleiri íslenskra tónlistamanna.
Lag af plötunni sem nefnist Staircase Sonata hefur á stuttum tíma hlotið yfir 700.000 spilanir á Spotify og hefur unga tónskáldið vakið athygli í erlendum fjölmiðlum víðsvegar um Evrópu. Lagið samdi Gabríel þegar mikill stormur skall á og það flæddi vatn inn í stúdíóið hans. Þá báru slökkviliðsmenn píanóið hans út á gang þar sem honum líkaði hljómburðurinn vel og skírði hann því lagið eftir stigaganginum.
Í tilefni útgáfunnar blés Gabríel til útgáfutónleika í Mengi á Óðinsgötu á föstudaginn og í framhaldinu mun hann spila á tónleikum í Evrópu og Bandaríkjunum, en einnig mun hann leika lög af plötunni á Iceland Airwaves hátíðinni núna í nóvember. „Ég er mikið fyrir að ímynda mér hluti og leyfi huganum að reika. Titillag plötunnar er mér mjög kært, ég hef verið með laglínuna í því í hausnum síðan ég var 14 ára, þó ég hafi ekki endanlega klárað það fyrr en í ár,” segir Gabríel í fréttatilkynningu frá One Little Indian.
Tónlist hefur átt hug Gabríels og hjarta allt frá unga aldri en hann byrjaði að semja aðeins 12 ára. Hann hóf nám í tónlistarskóla FÍH þegar hann var 14 ára og lærði bæði við djass- og klassíska deild skólans en fannst þó alltaf skemmtilegra að semja sínar eigin melódíur en að spila verk annarra. Gabríel útskrifaðist úr Menntaskólanum við Hamrahlíð í fyrra en á meðan hann var nemandi þar vann hann bæði lagasmíðakeppni skólans og lék frumsamið lag á píanó í skemmtiatriði skólans í Gettu Betur á RÚV.
Þótt hann spili aðallega á píanó þá semur Gabríel einnig fyrir strengjahljóðfæri og slagverk. Hann segist bara skrifa nóturnar og vona það besta. Tónlist Gabríels svipar til kvikmyndatónlistar og meðal helstu áhrifavalda hans eru Jóhann Jóhannsson og Ludovico Einaudi sem samdi tónlistina fyrir kvikmyndina Intouchables. Síðasta sumar hélt Gabríel tónleika í Hörpu þar sem hann frumflutti verk sín.
Derek Birkett eigandi One Little Indian hefur, frá því að hann samdi við Björk á tíunda áratugnum, fylgst vel með tónlistarlífinu á Íslandi en áður hefur hann meðal annars gefið út plötur Ásgeirs Trausta, Ólafar Arnalds, Samaris og Emiliönu Torrini, auk Bjarkar Guðmundsdóttur
Gabríel Ólfas á Facebook
Gabríel Ólafs á Instagram
Umræðan