Volcano Victims er hugarfóstur Gauja Emils sem búsettur hefur verið í Berlín í nokkur ár. Hann gaf út fyrir stuttu lagið „Beginning of the 80s.”
Lagið byrjar á hrárri en grípandi bassalínu sem hljómar eins og eitthvað frá byrjun níunda áratugarins og þaðan kemur einmitt heiti lagsins. Einnig er skírskotun í sjónvarpsþáttinn Twin Peaks falin í texta lagsins sem aðeins hörðustu aðdáendur sjónvarpsþáttanna geta áttað sig á.
Volcano Victims hefur verið að gefa út ný lög að undanförnu og á næstu vikum eru fleiri væntanleg.
Umræðan