Rappstjarnan Joey Christ var að senda frá sér plötuna Joey 2 en á plötunni leitar kappinn meira inn á við en áður og má þar einnig finna skírskotanir í íslenskan samtíma og poppmenningu.
Joey Christ er hliðarsjálf Jóhanns Kristófers Stefánssonar en fyrsta lag hans, „Joey Cypher,” var eitt vinsælasta rapplag Íslands frá upphafi. Joey 2 er vægast sagt þéttur gripur og hrein unun að hlusta á hana frá byrjun til enda. Joey er og hefur alltaf verið með ansi skemmtilega texta og ekki vantar það á þessa frábæru plötu. Platan er unnin í samstarfi við Martein Hjartarson, aka BNGR BOY en einnig syngur Floni inn á lagið 100p.
Joey Christ er á lista hjá Les Fréres Stefson útgáfunni sem tilheyrir 101derland.
Joey Christ á Instagram
101derland á Instagram
Umræðan