ALBUMM
  • Tónlist
  • Menning
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
  • Tónlist
  • Menning
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Heim Tónlist

SKEPTA tryllir landann í Valshöllinni

Ritstjórn Albumm.is Eftir Ritstjórn Albumm.is
29. apríl, 2022
í Tónlist
0 0
0
SKEPTA tryllir landann í Valshöllinni
Deila á FacebookDeila á Twitter

Tónlistarmaðurinn Skepta kemur fram á sínum fyrstu sólótónleikum á Íslandi föstudaginn 1. júlí nk. í Valshöllinni en miðasala hefst 3. maí á tix.is. 

Skepta kom fram á sjónarsviðið sem pródusent og rappari árið 2004 og hefur frægðarsól hans risið með ári hverju síðan þá. Með orkumikilli sviðsframkomu og hverjum slagaranum á fætur öðrum hefur hann sankað að sér gríðarstórum hópi aðdáenda um allan heim.

Skepta hefur frá upphafi ferils síns verið mikilvægur fyrir bresku tónlistarsenuna sem og fyrir breska samtímamenningu í heild sinni sem einn af frumkvöðlum Grime tónlistarstefnunnar. Hann hefur allan sinn feril gefið sína tónlist út hjá sínu eigin plötufyrirtæki, Boy Better Know (BBK), sem hann stofnaði ásamt bróður sínum JME, Wiley og fleirum. Skepta og BBK voru andlit grime stefnunnar þegar hún náði vinsældum á heimsvísu árið 2015 og lag hans Shutdown þar í broddi fylkingar en það var vinskapur Skepta og kanadíska rapparans Drake sem kemur fram í byrjun lagsins sem meðal annars vakti á því mikla athygli á sínum tíma. 

Stuttu síðar sama ár var Skepta hluti af Iceland Airwaves hátíðinni ásamt bróður sínum JME þar sem hann kom fram í troðfullu Listasafni Reykjavíkur. Skepta fylgdi gífurlegum vinsældum Shutdown eftir með útgáfu plötunnar Konnichiwa sem sló í gegn og hlaut hin virtu Mercury verðlaun. Auk þess var Skepta útnefndur listamaður ársins í Bretlandi af tónlistartímaritinu NME og í kjölfarið varð endanlega ljóst að Skepta væri ekki bara einn stærsti og virtasti rappari Bretlands heldur einn vinsælasta tónlistarmaður landsins óháð stefnu. Skepta kom fram á tónleikum og tónlistarhátíðum um allan heim og vakti ekki síst athygli annarra tónlistarmanna, sérstaklega rappara frá Bandaríkjunum sem flykktust í kringum hann. Ferill Skepta tók svo enn eitt stökkið þegar lagið Praise da Lord með honum og stjórstjörnunni A$AP Rocky kom út árið 2018 og mætti segja að með þeirri útgáfu hafi Skepta endanlega fest sig í sessi sem stjörnu á heimsvísu.

Síðan þá hefur Skepta gefið út eina sólóplötu, Ignorance is Bliss, samvinnuplötuna Insomnia ásamt Young Adz og Chip, smáskífuna All in auk þess sem hann hefur komið fram á fjölmörgum lögum með öðru tónlistarfólki. Meðal samstarfsfólks Skepta í gegnum tíðina má nefna A$AP Rocky, Drake, Pharrell, Kanye West, Blood Orange, Wiz Khalifa, Wizkid, Kid Cudi og J Hus. Auk þess að vera vinsæll tónlistarmaður hefur Skepta einnig verið gífurlega eftirsóttur samstarfsaðili í tískuheiminum og hefur hann meðal annars starfað með tískurisunum Dior, Givenchy, Bottega Venetta og Louis Vuitton en hann og Virgil Abloh sem gegndi hlutverki listræns stjórnanda hins síðastnefnda voru nánir samstarfsfélagar allt til andláts hans árið 2021.

Í tilkynningu frá tónleikahaldara, Garcia Events segir að það sé mikið hamingjuefni að svo vinsæll og virtur tónlistarmaður komi fram á Íslandi og að allir sem þekki til tónleika Skepta viti að enginn verður svikinn af kvöldstundinni í Valshöllinni

Tengdar Greinar

Albumm frumsýning – Manic State með glænýtt lag og myndband!
Tónlist

Albumm frumsýning – Manic State með glænýtt lag og myndband!

Haraldur Már og Friðrik Thorlacius skipa dúóið Manic State og eru þeir heldur betur að þruma sér inn í...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
27. apríl, 2022
Fullkomlega ókunnug fyrir sjálfri sér
Tónlist

Fullkomlega ókunnug fyrir sjálfri sér

Þríeykið Vök var að gefa út nýtt lag sem ber nafnið Miss Confidence og fylgir í kjölfar Lose Control...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
26. apríl, 2022
Leyfir sér að vera klisjulegur, cheesy eða whatever 
Tónlist

Leyfir sér að vera klisjulegur, cheesy eða whatever 

Kvikna er annar singullinn af væntanlegri plötu tónskáldsins Sævars Jóhannssonar, Whenever You're Ready sem kemur út 6. Maí.  Platan...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
25. apríl, 2022
Mánudagsplaylisti Ísaks Morris
Tónlist

Mánudagsplaylisti Ísaks Morris

Tónlistarmaðurinn  Ísak Morris hefur komið víða við og er á blússandi siglingu um þessar mundir. Fyrir skömmu sendi hann frá...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
25. apríl, 2022

Umræðan

albumm@albumm.is
steini@albumm.is
Sími: 768-8606
Faxafen 10, 108 Reykjavík

VALMYND

  • TÓNLIST
  • MENNING
  • ALBUMM TV
  • INNLIT
Albumm.is © 2021 Allur réttur áskilinn | Íslandsvefir hönnuðu og hýsa þennan vef.
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
  • Tónlist
  • Menning
  • Albumm TV

© 2021 Albumm.is - Allur réttur áskilinn

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In

Add New Playlist