Hljómsveitin Of monsters And men er heldur betur á blússandi siglingu um þessar mundir en sveitin er á tónleikaferðalagi um norður Ameríku.
Í gær kom sveitin frá í hinum sívinsæla þætti The Ellen DeGeneres Show og flutti lagið sitt Alligator. Frammistaða Omam var vægast sagt stórkostleg og fengu allir í salnum eintak af nýjustu plötu sveitarinnar, Fever Dream. Platan kom út 26. júlí síðastliðinn og stökk beint inn í 9. sæti Billboard 200-listans, sem er frábær árangur! Næstu tónleikar Omam eru á morgun, 26. September í Seattle.
Hægt er að sjá Omam taka lagið hjá Ellen HÉR.
Umræðan