Sirkus var einn vinsælasti skemmtistaður Reykjavíkur á árum áður þar sem fastakúnnar úr lista- og menningarlífinu voru áberandi. Staðnum var lokað árið 2007 en tveimur árum síðar var útibú opnað í Færeyjum.
Flest allar hljómsveitir og listafólk sóttu staðinn og má nefna t.d. Færeysku listamennina Eivöru pálsdóttir og pönk hljómsveitin 200 en margir færeyskir listamenn hafa tengst sirkus á einn eða annan hátt. Að sjálfsögðu var staðurinn ávallt stappaður af íslensku listafólki og má t.d nefna Sigur Rós, Björk, Botnleðja, Quarashi, Maus, Ensími og fleiri og fleiri.

Nú geta Íslendingar heldur betur fagnað en í gær, föstudaginn 1. apríl opnaði SIRKUS aftur í Reykjavík. Nánar tiltekið í Lækjargötu 6. Öllu er til tjaldað en eigendur staðarins, Jóel Briem og Finni Karlsson ásamt fullt af frábæru fagfólki er búið að vera dag og nótt að græja staðinn og er útkoman vægast sagt stórkostleg. Allt er eins og það á að vera, Pálmatrén eru á sínum stað og að sjálfsögðu borðin en þau eru öll skreytt af okkar helstu listamönnum. Hátt í 20 listamenn tóku þátt í að skreyta staðinn og má segja að SIRKUS sé eins konar safn.
„Mér finnst að sjálfsögðu tilvalið að fá allt þetta geggjaða listafólk til að skreyta staðinn með sínum verkum. Þaðan kemur orkan og þaðan kemur andinn. Þessi SIRKUS andi,” segir Jóel Briem einn af eigendum staðarins.

Staðurinn opnaði með pomp og prakt í gær kl 17: en það var enginn annar en plötusnúðurinn og tónlistarmaðurinn Pan Thorarensen sem byrjaði kvöldið og svo tók goðsögnin KGB við og þeyttihann skífum fram á nótt eins og honum einum er lagið. Dagskráin fyrir apríl er virkilega þétt og glæsileg en það er enginn annar en Pan Thorarensen sem er bókari og skemmtanastjóri staðarins. Dagskrána er hægt að sjá hér að neðan.
Einnig er hægt að gæða sér á frábærum indverskum mat frá Mama Rama sem eðal kokkurinn Arjun eldar af ástríðu, Arjun er frá Indlandi en er nú búsettur hér á landi og honum finnst ekkert skemmtilegra en að ,atreiða ljúffengan mat ofan í okkur Íslendingana.
Albumm mætti á opnunina í gær og var það virkilega vel heppnað. Það er gott að fá SIRKUS aftur!

Fylgstu með Sirkus á Instagram









Allar myndirnar eru teknar á Iphone 13 pro max frá Emobi.
Umræðan