Tónlistar tvíeykið Sappanwood hefur að geyma þá Elvar Braga Kristjónsson og Val Zophoníasson. Tónlistarsamband þeirra nær frá árinu 2005 en Sappanwood er þó nýskriðið úr ofninum.
Sameiginlegur þorsti í melankólíu og sjálfsskoðun varð til þess að Elvar og Valur ákváðu að stofna Sappanwood sumarið 2014 eftir að hafa reynt fyrir sér á öðrum hliðum poppsins.
Áður hafa þeir starfað saman í hljómsveitinni Ferju og Elvar Bragi hefur að baki litríkan tónlistarferil og blæs til að mynda trompet í afróbeat hljómsveitinni Bangoura Band.
Sappanwood hefur lokið upptöku á sinni fyrstu hljómplötu sem kemur út síðla árs 2015.
Hér má heyra fyrsta singullinn af komandi plötu Sappanwood Reverse. Lagið heitir “Around”
Umræðan