SKYLINE er þriðja smáskífan frá söngkonunni og lagahöfundinum Klöru Elíasdóttur og er hin fullkomna sumar popp ballaða!
Ólíkt fyrstu tveim smáskífunum frá henni þar sem þemað er brotið hjarta og ástarsorg, fjallar þessi sumarsmellur um það að taka áhættu og hafa hugrekki til að verða ástfanginn.
„Lagið var samið í eyðimörkinni í Kaliforníu, áður en að hörmungarnar dundu yfir heiminn í fyrra, í einu fallegasta húsi sem ég hef unnið í. Lagið endurspeglar algjörlega hvað ég var bjartsýn og hamingjusöm þennan dag. Lagið fjallar eiginlega um það að þora að verða ástfangin og áhættuna sem fylgir því að galopna hjarta sitt fyrir einhverju nýju – þó það hræði þig. Því það getur verið mjög ”scary” þegar það hefur verið brotið illa áður – að taka sénsinn og treysta því að ef maður fellur að einhver sé þar til að grípa þig.” – Klara Elias.
Klara samdi lagið með lagahöfundinum og upptökustjóranum James Wong. Hann hefur meðal annars samið lög fyrir Justin Bieber, Demi Lovato og Fifth Harmony. SKYLINE er hluti af stuttskífu (EP) sem Klara gefur út seinna í sumar. Klara er einnig búin að hanna og framleiða varning, hettupeysur og boli. Allur varningur verður seldur rafrænt í gegnum síðu sem fer í loftið í kringum útgáfu SKYLINE.
Umræðan