„Daginn sem ég skrifaði þetta lag fann ég að ég hafði hugsað alveg óþarflega mikið um hvað öðrum finnist, hvort ég segi það rétta, hvort ég líti nógu vel út og svo framvegis og þá samdi ég þetta lag, til að minna sjálfa mig á að vera ánægð með að vera ég,“ segir tónlistarkonan ROKKY, sem var að senda frá sér nýtt lag, Somebody else.
Lagið samdi ROKKY í einni lotu ásamt James Yuill frá Bretlandi og kláraði það í einangrun á Spáni þar sem hún dvelur nú en ROKKY er búsett í Berlín. Helstu skilaboð lagsins eru að vera sáttur við sjálfan sig og láta ekki aðra segja sér annað. Þetta er fjórða lagið sem ROKKY gefur út og það mest poppaða hingað til og því tilvalið fyrir sumarið.
Umræðan