Tónlistarkonan Fríða Dís var að senda frá sér lagið Don’t Say af væntanlegri breiðskífu. Don’t Say er dúett ásamt tónlistarmanninum Íkorna (Stefán Arnar Gunnlaugsson) og er lagið sveipað rómantískum blæ.
„Leiðir okkar Stefáns liggja fyrst saman árið 2011 í hljómsveitinni Eldar sem var einskonar lágstemnd súpergrúppa. Þarna voru Valdimar Guðmundsson, Björgvin Ívar Baldursson, Örn Eldjárn, Sigtryggur Baldursson og við,“ útskýrir Fríða um þeirra fyrsta samstarf. „Ég er mikill aðdáandi hljómsveitarinnar Lights on the highway og kannaðist við Stefán Örn þaðan og þótti mjög tilkomumikið að vera komin í hljómsveit með þessum framúrskarandi tónlistarmönnum. Ég og Stefán áttum strax gott skap saman, skyldum hvort annað, urðum fljótt mjög góðir vinir og höfum unnið mikið saman síðan. Stefán er stórkostlegur listamaður og ótrúlega fær í því sem hann gerir. Eftir útgáfutónleikana mína í febrúar 2020 (korter í covid) stakk hann upp á því að við myndum vinna meira músík saman og þegar ég samdi Don’t Say síðsumars 2020 var ég sérstaklega með röddina hans í huga.“
Fríða segir að Don’t Say er fyrsta lagið sem hún ákvað að setjast niður og semja lag. „Hingað til hef ég alltaf verið að vinna úr lagahugmyndum eða bútum sem poppa óvænt upp í kollinn í tíma og ótíma. Lagið er reyndar samið í baði en vatnið virðist hjálpa mér að leyfa hugmyndunum að flæða og fyrir eirðarlausa manneskju með milljón og eina hugmynd í hausnum hverju sinni sem á erfitt með að sitja kyrr virðist baðið vera griðastaður hugmyndavinnu, að geta einbeitt mér betur að einum hlut í einu.“
Hún segir að upptökurnar runnu mjög náttúrulega, tóku lagið upp og leyfðu hlutunum að standa. „Oftast vil ég hlusta á allar söngtökurnar í einrúmi og púsla þeim saman en þarna ákvað ég bara að leyfa tónlistinni að flæða með sínum kostum og göllum án þess að hrófla við neinu.“
Listaverkið fyrir lagið er Fríðu mjög kært en maðurinn hennar er með heilt sólkerfi af fæðingablettum og hefur hún varið mörgum stundum í að tengja þá saman í stjörnumerki.
„Í textanum syng ég: The marks on your skin are a map to a better place. Því kom ekkert annað til greina í huga mér en að útfæra stjörnumerki úr fæðingarblettunum hans fyrir lagið.“
Fríða á bæði lag og texta ásamt því að syngja og leika á bassa. Smári Guðmundsson leikur á rafgítar og Stefán Örn (Íkorni) leikur á píanó, kassagítar og trommu ásamt því að syngja lagið með Fríðu. Upptökur fóru fram hjá Smára í Stúdíó Smástirni og Stefáni í Stúdíó Bambus. Útsetningin er í höndum Fríðu, Smára og Stefáns en Stefán Örn sá einnig um að hljóðblanda lagið. Sigurdór Guðmundsson hjá Skonrokk Studio sá svo um hljóðblöndun.
Umræðan