Fyrir ekki svo löngu sendi tónlistarmaðurinn Freyr Torfason eða Kráka frá sér lagið Regn. Lagið er létt en textinn hefur mikla meiningu, segir Kráka.
Regn varð til á mettíma, eftir mótorhjólatúr með félögum sínum yfir hálendið, hringinn í kringum langjökul.
„Ég sit á nokkrum lögum sem eru tilbúin, ég elska að skrifa og gera tónlist en það kemur í bylgjum hjá mér. mig langar að gefa þetta út eitt lag í einu og svo væri gaman að fara í kjarnan, í laugardalinn en þar eru hrá beat að verða til á hverjum degi.”
Kráka.
Næst á dagskrá er að semja fleiri lög og er samstarf með pródúsernum fonetik simbol á borðinu.
Umræðan