Saman fyrir Seyðisfjörð er nýtt samstarfsverkefni sem beitir sér fyrir uppbyggingu Seyðisfjarðar eftir þann harmleik sem átti sér stað fyrir jól.
Lítill hópur velunnara bæjarins sem tengjast hátíðunum LungA og List í ljósi auk listamannasetursins Heima er nú að skipuleggja styrktartónleika þar sem einvalalið íslensku tónlistarsenunnar kemur fram, auk fleiri uppákoma.
Styrktartónleikarnir munu fara fram sem streymi og allur ágóði mun renna til íbúa og samfélagsins á Seyðisfirði. Áætlaður útsendingartími er í lok mánaðarins og verður tilkynnt um nákvæma dagsetningu von bráðar. Rauði krossinn heldur utan um fjársöfnunina og sér um að útdeila þeim fjármunum er safnast í nánu samstarfi við ýmsa aðila í samfélaginu.
Fyrir stuttu voru samfélagsmiðlar átaksins settir í loftið, en þar verður veitt einstök innsýn inn í líf íbúa Seyðisfjarðar auk tónlistarbrota o.fl.
Upplýsingar um fjáröflun:
Sendið sms skilaboðin ´HJALP´ til 1900 til að gefa 2900 krónur
Millifærið frá íslenskum bankareikning:
Kt: 530269-2649
Reikningsupplýsingar: 0342-26-000012
Millifærið frá erlendum bankareikning:
IBAN: IS460342260000125302692649
SWIFT: ESJAISRE