S I L V R A er samstarfsverkefni Láru Rúnars & Arnars Guðjónssonar. Lára er söngkona/lagasmiður, jógakennari & meðferðaraðili. Hún hefur gefið út sex plötur og vann nýlega Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lag ársins. Arnar Guðjónsson er einn fremsti upptökustjóri landsins.
Hann er stofnandi hljómsveitarinnar Leaves, stofnandi og meðlimur Warmland ásamt Hrafni Thoroddsen (Ensími) en Warmland skorar hátt á vinsældarlistum landsins. Hann hefur unnið með fjöldanum öllum af íslenskum tónlistarmönnum og hlaut nýverið gullplötu í Bandaríkjunum fyrir verk sín með Kaleo. Hann hefur skrifað og samið tónlist fyrir kvikmyndir og heimildarmyndir og gefið út nokkrar breiðskífur.
Tónlist Silvru er nú spiluð í The Blue Lagoon Retreat Spa, einum af mest heimsóttu stöðum Íslands og ein fremsta heilsulindin í heiminum í dag en Silvra gaf nýverið út sitt fyrsta lag, „Deer.” Máttur hjartardýrsins er samkennd, friður, að fagna tækifærunum, leita að hamingju og elska skilyrðislaust.
Tónlist Silvru er eins og leiðsla, hún hjálpar dýpra inn í hugleiðsluástand, hún er bæði hvetjandi og róandi.
Silvramusic.com
S I L V R A á Instagram
Umræðan