Baby It’s Love er nýjasta lagið frá Rolf Hausbentner Band og er unnið í samstarfi við Fríðu Dís. Svalur rokkari um neistann sem blossar upp á milli tveggja einstaklinga sem kom út á streymisveitum föstudaginn 12. nóvember 2021.
Rolf Hausbentner Band er hljómsveit sem stofnuð var árið 2020. Eftir áralangt hark á ölduhúsum og knæpum heimsins var sköpunargáfan beisluð og vinnur Rolf Hausbentner Band nú að upptökum á fyrstu plötu sinni sem er væntanleg árið 2022. Baby It’s Love er eitt af þeim lögum sem verða á þeirri plötu.

Á Baby It’s Love syngja þau Fríða Dís og Hlynur Þór Valsson og um hljóðfæraleik sjá Rolf Hausbentner og gítarleikarinn BB Green ásamt trommuleikaranum Ólafi Ingólfssyni sem jafnframt var í hlutverki upptökumanns. Lagið var svo hljóðblandað af Inga Þór Ingibergssyni.
Rolf Hausbentner Band spilar rokk og ról fyrir ljúfar sálir.
Umræðan