Tónlistarmaðurinn rafnar var að gefa út myndband við tónverkið Tlaloc af komandi plötu hans VODA sem kemur út í Október 2020.
Þetta er þriðja lagið og myndbandið sem rafnar gefur út tengt “conceptinu” er hann kallar VODA sem er þríleikur og byggist upp á samhljómi og sameiningu þriggja listforma; tónlist, myndlist og vídeólist þar sem allt fellur saman sem ein heild fyrir hvert verk.
Myndbandið er tekið upp á norðurlandi við fallega náttúruperlu sem kallast Gatanöf og er staðsett rétt fyrir utan Húsavík. Í laginu fær hann til liðs við sig Belgísku söngkonuna Martje Vande Ginste sem hann hitti á ferðalagi fyrir 8 árum síðan er þau bæðu gistu á farfuglaheimili eina nóttina í Bergen, Noregi. Hún lofaði honum að ef og þegar hann gæfi út sína fyrstu plötu þá mundi hún syngja lag á henni og úr varð verkið Tlaloc sem hægt er að finna bæði á Spotify sem og á YouTube rás rafnars.
Umræðan