Tónlistarmaðurinn Brem eða Kjartan eins og hann heitir réttu nafni er að senda frá sér EP plötuna The Sagas. Kappinn er ekki einsamall á plötunni en hann vinnur hana ásamt tónlistarmanninum Danny Satori.
Danny og Brem byrjuðu að vinna plötuna árið 2015 međ pródúser frá Bandaríkjunum og var platan unnin á Íslandi, Usa , Spáni og Berlin.
„Þetta birjađi međ því ađ ég var ađ gefa út plötu undir nafninu kjartman á plötuútgáfu frá london og Danny Satori var einnig ađ gefa þar út. Við birjuđum ađ spjalla saman og út frá því fórum við að vinna saman” – segir Kjartan.
Á þessum tíma var Kjartan staddur á Íslandi og Danny í Brooklyn, samstarfið gekk vel og ákváðu kapparnir að vinna enn frekar saman. Fljótlega flytur Kjartan til Spánar og Danny til Berlínar og margt gekk á en fókusinn var ávallt á þessarri EP plötu, þótt hún tók sinn tíma.
Plötuútgáfan LTHM gefur plötuna út en hún lýtur dagsins ljós 24. Apríl og verður fáanleg á öllum helstu streymisveitum. Hér fyir neðan má heyra brot af lögunum sem verða á plötunni og mælum við hiklaust með að skella á play og njóta!
Brem á Facebook
Danny Satori á Facebook
Umræðan