Hin goðsagnakennda rafsveit Plaid með þeim félögum Ed Handley og Andy Turner mun spila á opnunartónleikum Extreme Chill Festival 2020 fimmtudaginn 1. Október en Plaid eru einnig stofnmeðlimir The Black Dog.
Árið 1991 skrifuðu Plaid undir plötusamning hjá breska útgáfurisanum Warp Records. Þeir hafa unnið undir ýmsum dulnefnum þar á meðal: Atypic, Repeats og Balil, en hafa einbeitt sér að Plaid síðan árið 1995. Plaid hafa sent frá sér 17 plötur frá „Mbuki Mvuki” frá 1991 til „Polymer” frá 2019. Þeir hafa unnið með ýmsum listamönnum eins og: Björk, Bob Jaroc, Mara Carlyle, Nicolette, Felix’s Machines, Rahayu Supanggah, Random Dance, SARC, The London Sinfonietta og fleiri.
Tónleikarnir fara fram fimmtudaginn 1 október á Hard Rock Cafe. Einnig koma fram Biggi Veira (GusGus Dj set), skurken og DJ Margeir Miðinn kostar aðeins 4900 kr. Hátíðarpassinn gildir einnig á viðburðinn.
Tónlistarhátíðin Extreme Chill Festival fer fram í Reykjavík dagana 1.-3. október en þetta er 11.árið sem hátíðin er haldin. Í ár kemur mikill fjöldi ólíkra listamanna fram á hátíðinni, allt frá tilraunakenndum til klassískrar listamanna. Hátíðar passinn kostar aðeins 9.900 kr og gildir á alla 3 dagana. Hér er hægt að tryggja sér hátíðarpassa á Harpa.is
Hægt er að nálgast miða á Plaid á Tix.is
Umræðan