Útvarpsþættirnir PartyZone er einn ástsælasti útvarpsþáttur þjóðarinnar en nú er átturinn kominn með Podcast!
Þættirnir fara í loftið snemma á föstudögum svo fólkið fái vikuskammtinn sinn af góðri danstónlist. Inn í helgina og í lok vikunnar. Í þættinum sem kom út í gær, föstudag er mál málana, PartyZone listinn! Farið er yfir topp 30 lögin fyrir maí mánuð og múmía kvöldsins var topp lagið á PZ listanum fyrir 20 árum.
„Menn voru að losna úr nettri spennitreyju og létu allt flakka. Í lok þáttar uppljóstrum við upp hvernig PartyZone sumarið 2020 verður. Fyrir utan öll funheitu lögin á listanum, spilum við geggjaða múmíu, topplagið í apríl 2000” Segir plötusnúðurinn og PartyZone sprengjam Helgi Már.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á þáttinn og mælum við hiklaust með því!
Umræðan