Oyama gefur út stuttskífuna Opaque Days. Skífan inniheldur 5 lög og kemur út á öllum helstu streymisveitum 10. apríl.
Oyama er Reykvískt fimmeyki sem spila indískotið shoegaze og sveimrokk og gáfu seinast út plötuna Coolboy árið 2014 sem var pródúseruð af Pétri Ben og sendi sveitina út um allan heima að spila, þ.á.m. Japan þar sem platan kom út á Imperial Records.
Oyama hafa lítið látið fyrir sér fara seinustu ár en eru mætt aftur og voru í fyrstu tilkyningu hljómsveita sem spila á Iceland Airwaves 2020. Hér fyrir neðan má sjá myndaband við fyrsta lagið á skífunni, Spare Room.
Umræðan