Bókin Um Veginn er glænýtt lag og myndband frá rapparanum Óþekktur.
Kappinn gerir nánast allt sjálfur, pródúsar (útsetja), mixar og masterar en með smá hjálp frá tónlistarmanninum Strákskratti. Bókin Um Veginn er fyrsta lagið sem Óþekktur sendir frá sér en hann var með rímur í lögunum „R.j.ó.m.i.n.n” með hljómsveitinni Shades Of Reykjavík og „Byssubrandur” með Emmabeats. Óþekktur vinnur nú hörðum höndum að sinni fyrstu EP plötu (þröngskífu) sem væntanleg er á næstunni. Plötuna vinnur Óþekktur alveg sjálfur og má búast við fleiri lögum af henni á næstu vikum!
Umræðan