Akureyringurinn Ivan Mendez var að senda frá sér splunkunýtt lag, Backtothestar. Óhætt er að segja að Ivan hafi verið duglegur því hann hefur gefið út nýtt lag á fimm vikna fresti og er Backtothestar fjórði singúllinn af fimm laga EP-plötunni 5 Ways to Free a Heart. Með hverju lagi fylgja svo dagbókarfærslur þar sem tónlistarmaðurinn dregur ekkert undan.
„Í lok árs upplifði ég svolítið sem varð til þess að ég fór bæði að velta ástinni fyrir mér og rýna í eigin textagerð og uppgötvaði þá að einhverskonar undirliggjandi ástarsorg er eins og rauður þráður í gegnum alla textana mína. Út frá því fékk ég þá hugmynd að gefa út einlægar dagbókarfærslur með hverju lagi og opinbera algerlega það sem ég var að ganga í gegnum og hætta að burðast einn með eigin tilfinningar,“ lýsir Ivan þegar hann er spurður út í tónlistina.
„Hvað ef ég byrja að segja öllum sannleikann um sjálfan mig, alltaf? Allt sem liggur mér á hjarta? Þá hef ég ekkert að fela.“
Hann segir að sjálfsævisaga Gandhis, My experiments with Truth, þar sem Gandhi hafi ekkert dregið undan og alltaf haft sannleikann að leiðarljósi við skrif bókarinnar, hafi m.a. veitt honum innblástur. „Mörg trúarbrögð virðast upphefja sannleikann, hvort sem það er búddismi, hindúismi, kristintrú eða eitthvað annað. Það að segja satt virðist álitin ein skilvirkasta leið sem til er til að losna undan eigin hugarfjötrum svo ég hugsaði með mér: Hvað ef ég byrja að segja öllum sannleikann um sjálfan mig, alltaf? Allt sem liggur mér á hjarta? Þá hef ég ekkert að fela.“
Ivan kveðst stundum hafa bakkað og velt fyrir sér hvort hann væri í raun og veru nógu heiðarlegur við sjálfan sig. Hann viðurkennir að hafa oft hent því sem hann var að skrifa og byrjað upp á nýtt.
„Ég byrjaði á þessu verkefni einn en áður en ég vissi af var ég kominn með heilan helling af fólki í kringum mig, í lagasmíðum, upptökum, hljóðfæraleik, framleiðslu og vinnslu á myndefni,“ segir hann og nefnir sérstaklega meðframleiðanda sinn Andres Simon. Hann hafi verið hægri hönd sín í mótun hljóðheims plötunnar 5 Ways to Free a Heart og þeir séu nú þegar farnir að spá í framhaldið. Og ef marka má Ivan, verður nóg að gera hjá honum á næstunni. Hann er þegar að verða búinn með fyrsta árið í BA námi í Music Production í Berlín og í sumar ætlar hann að hjálpa vini sínum, Hinrik Hólmfríðarsyni Ólasyni, að halda hátíðina Sólarlög í Grímsey þann 19. júní.
„Síðan er planið að halda hátíðina Hauststillu í þriðja skipti heima á Akureyri þegar það fer að hausta. Það er mikið rokk og ról framundan. Síðan mun síðasta lagið af 5 Ways to Free a Heart koma út 12. júní og þá ætla ég að setja dagbókarfærslurnar á ís um ókominn tíma.“
Færslurnar er að finna á imendezmusic.com undir „5 ways to free a heart“
Umræðan