Listasamlagið post-dreifing kemur til með að standa í þriðja sinn fyrir árlegri listahátíð með áherslu á tónlist, HÁTÍÐNI, helgina 3.-5. júlí nú í sumar á Borðeyri í Hrútafirði.
Hátíðin grundvallast á D.I.T. (gerum-það-saman) hugmyndafræði og er ekki rekin í gróðaskyni. Engar vísbendingar um dagskrá verða birtar samhliða þessari tilkynningu þar sem bókunarferlið í ár verður með öðru sniði en áður. Þ.e.a.s.; engin atriði verða bókuð fyrirfram, heldur verður opið umsóknarferli fyrir öllu sem kunna að hafa áhuga á að taka þátt.
Búið er að opna fyrir umsóknir og verður tekið við öllum umsóknum, hvort sem um er að ræða tónlistaratriði, ljóðalestur, kynningar, vinnusmiðjur eða hvað sem er. Umsóknir berist á tölvupóstfangið: post-dreifing@post-dreifing.is fyrir miðnætti 29. febrúar nk. Nánari upplýsingar um hvað þarf að koma fram er á auglýsingaplakatinu eftir Silju Rún sem er hér fyrir ofan.
Búast má við að miðasala hefjist á allra næstu vikum, og verður það tilkynnt hér og á samfélagsmiðlum post-dreifingar þegar nær dregur.
Umræðan