Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds og tónlistarkonan JFDR voru að senda frá sér glænýtt lag og myndband sem heitir „Back To The Sky.”
Ólafur segir lagið vera afar persónulegt en hann hefur verið ansi iðinn við tónlistarsköpun að undanförnu. Eins og flestir vita er kappinn á blússandi siglingu og er hann orðinn vel þekktur út um allan heim. JFDR eða Jófríður Ákadóttir eins og hún heitir réttu nafni hefur verið ansi áberandi að undanförnu en hún ljáir laginu rödd sína og gerir hún það listarlega vel. Um þessar mundir er Ólafur að vinna að nýrri tónlist sem kemur út á næstunni.
Myndbandið er einkar glæsilegt en það er Sturla Atlas sem leikur í því og fer hann á kostum. Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið en það eru Árni & Kinski sem eiga heiðurinn af því.
Umræðan