Of Monsters and Men var að senda frá sér nýtt tónlistarmyndband við lagið Wild Roses af nýjustu plötu sinni, Fever Dream.
Myndbandið sem er leikstýrt af Þóru Hilmarsdóttir var tekið upp í Sundhöll Hafnarfjarðar yfir heila nótt áður en þau héldu á tónleikaferð um heiminn næsta dag. Salka Rósenkranz aðstoðaði Nönnu, sönkonu sveitarinnar með allar hreyfingar og er sjón sögu ríkari! Nanna segist hafa lengi viljað vinna með Þóru Hilmars og loksins gafst tími til.
Nú styttist óðum í tónleika sveitarinnar hér á Íslandi en þau munu koma fram í Valshöllinni á Iceland Airwaves laugardagskvöldið 9. nóvember.
Skellið á play og njótið!
Umræðan