ALBUMM
  • Tónlist
  • Menning
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
  • Tónlist
  • Menning
  • Albumm TV
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Albumm
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
Heim Tónlist

„Óður til bernskunnar sem fagnar tjáningarfrelsinu“

Ritstjórn Albumm.is Eftir Ritstjórn Albumm.is
3. maí, 2022
í Tónlist
0 0
0
„Óður til bernskunnar sem fagnar tjáningarfrelsinu“
Deila á FacebookDeila á Twitter

Klæddu þinn versta kvíða í háa hæla, settu rauðan varalit á skammarlegar minningar, bjóddu táningsdraugunum þínum í heimsókn, hækkaðu í tækinu og láttu þau öll dansa hvert við annað!

Einu ári eftir fyrstu breiðskífu þeirra Stundum þunglynd … en alltaf andfasísk gefur BSÍ út Relax, blabla, aðra tvíhliða útgáfu, eitt hratt lag, eitt hægt lag, og rétt í tæka tíð fyrir enn eitt sumarið!

Relax, blabla’ er uppörvandi hópmeðferðar tími þar sem fortíðardraugar og -áföll mæta 157 bpm af æstri leikgleði (‘Jelly Belly’) og bláhærð minning dansar hægan vangadans á skólalóðinni við eitraðan hópþrýsting (‘New Moon’).

Með laginu Jelly Belly fylgir fjörlegt tónlistarmyndband þar sem persónur þess, stórar sem smáar, eru í sífelldri og endurtekinni sjálfsmyndar leit, þar sem þau rekast á, uppgötva og endurskapa sig sjálf í truflaðri veggfóður útópíu.

Ugla Hauksdóttir leikstýrði og klippti myndbandið við ‘Jelly Belly’, með aðstoð Markusar Englmair (kvikmyndataka og litgreining), Berglindar Ernu Tryggvadóttur og Sigurlaugar Thorarensen (búningar og leikmynd), Önnu Kolfinnu Kuran (danshöfundur), og kynnir til leiks ungu leikarana Hildigunni Atladóttur og Guðmund Brynjar Bergsson.

Með orðum Uglu: „Tónlistarmyndbandið við Jelly Belly er fjörugur óður til bernskunnar sem fagnar tjáningarfrelsinu, minnir okkur á að taka okkur ekki of alvarlega og leyfir okkur að bara hafa gaman.“

Ugla Hauksdóttir hefur áður leikstýrt tónlistarmyndböndum fyrir sillus, Bang Gang, East of My Youth, Cell7 og Betu. Auk þess hefur hún leikstýrt þáttum af sjónvarpsseríunum Ófærð, Hanna, Snowfall og The Power.

Jelly Belly var tekið upp og mixað af Árna Hjörvari (The Vaccines), ‘New Moon’ var tekið upp af Ægi Sindra Bjarnasyni og mixað af Francine Perry. Sarah Register sá um masteringu af báðum lögunum á ‘Relax, blabla’. Plötuumslag er eftir Sigurlaugu Thorarensen.

BSÍ eru bestu vinirnir Sigurlaug Thorarensen (trommur & söngur) og Julius Pollux (bassi & tá-synthi). Þau reyna að taka sjálf sig ekki of hátíðlega og eru óhrædd við að gera og vera alveg nákvæmlega eins og þeim sýnist. Þau elska að spila á tónleikum og gefa út tónlist sína á eigin vegum, með hjálp frá frábæru vinum sínum hjá Why Not? Plötum, post-dreifingu og tomatenplatten (Berlín).

Tengdar Greinar

Róleg og flæðandi heild
Tónlist

Róleg og flæðandi heild

Tónlistarmaðurinn Sk-Ar, sem er listamanns heiti Skúla Arasonar, hefur gefið út  verkið Við sjóinn.   Skúli tók upp sjávarhljóð, varðeld...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
2. maí, 2022
„Markmiðið var að hljóma í senn kunnuglega og undarlega“
Tónlist

„Markmiðið var að hljóma í senn kunnuglega og undarlega“

Tvær mannlegar raddir, Wurlitzer hljómborð og píanó núðlandi í næsta herbergi. Þetta var upplagið fyrir djazz standard plötuna More Than...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
29. apríl, 2022
Khalid gefur út Skyline fyrir tónleikana í Laugardalshöll – hressasta myndbandi ársins!
Tónlist

Khalid gefur út Skyline fyrir tónleikana í Laugardalshöll – hressasta myndbandi ársins!

Einn vinsælasti tónlistarmaður heims, KHALID, hefur gefið út lagið SKYLINE með hressasta myndbandi ársins sem er öruggt til að...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
29. apríl, 2022
SKEPTA tryllir landann í Valshöllinni
Tónlist

SKEPTA tryllir landann í Valshöllinni

Tónlistarmaðurinn Skepta kemur fram á sínum fyrstu sólótónleikum á Íslandi föstudaginn 1. júlí nk. í Valshöllinni en miðasala hefst...

Eftir Ritstjórn Albumm.is
29. apríl, 2022

Umræðan

albumm@albumm.is
steini@albumm.is
Sími: 768-8606
Faxafen 10, 108 Reykjavík

VALMYND

  • TÓNLIST
  • MENNING
  • ALBUMM TV
  • INNLIT
Albumm.is © 2021 Allur réttur áskilinn | Íslandsvefir hönnuðu og hýsa þennan vef.
Engar niðurstöður fundust
Skoða allar niðurstöður
  • Tónlist
  • Menning
  • Albumm TV

© 2021 Albumm.is - Allur réttur áskilinn

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In

Add New Playlist