Diagram, sem byrjaði sem sólóverkefni Hákonar Aðalsteinssonar (The Third Sound, Gunman & The Holy Ghost, Brian Jonestown Massacre), en er nú tvíeyki einnig skipað Dananum Fredrik Sunesen, var að senda frá sér nýtt myndband við lagið Remove The Veil (Remix).
Eins og titlillinn gefur til kynna er um endurhljóðböndun að ræða, en lagið mátti finna í upphaflegri mynd á fyrstu plötu sveitarinnar Transmission Response, sem kom út hjá Fuzz Club Records 2019.
Tónlistinn er að uppruna einhverskonar trommuheila rokk með frumstæðum raftónlistaráhrifum, en hefur þróast yfir í meiri analog hljóððgervla heim undanfarið. Part af þeirri þróun má heyra á lagasafninu 8 Tracks, sem kom út fyrr á þessu ári og er einnig fáanlegt á Bandcamp síðu sveitarinnar.
Hljómsveitarmeðlimir eru búsettir í Berlín og jomu fram á þónokkuð mörgum tónleiku þar áður en kórónafaraldurinn fór af stað, en sveitinn fór einnig stutta tónleikaferð um Evrópu í nóvember 2019. Þá er einnig von á fleiri endrhljóðblöndunum frá sveitinni seinna á árinu sem og nýju efni.
Diagram á Facebook
Umræðan