Nóg er um að vera hjá Reykjavíkurdætrum eða Daughers of Reykjavík eins og þær kalla sig núorðið.
Fyrr í vikunni sendu þær frá sér glænýjan smell sem ber heitið Fools Gold og nú stefna þær ótrauðar á útlönd. Já, dæturnar ætla að leggja land undir fót og eru á leiðinni til Noregs þar sem þær koma fram á þrennum tónleikum, á tónleikastaðnum Rockefeller í Ósló, á Tromsø Winterland Festival og á tónleikastaðnum Bodø. Lagið Fool Gold kom út bæði á íslensku og ensku.
Hægt er að hlýða á lagið hér
Umræðan