Gunnar Marís hefur verið lengi í rappsenuna á Íslandi en hann var að senda frá sér brakandi ferskt lag sem heitir „Ríkur.”
Lagið er tekið af plötu sem er væntanleg í haust og heitir það sama og lagið, Ríkur. Nóg er um að vera hjá G.Marís eins og hann er oftast kallaður en hann er einnig að gera föt, boli og peysur (fólk getur haft samband við kappan hér til að fá föt).
G.Marís hefur einnig verið ansi iðinn við leiklistina en von er á bíómynd þar sem hann fer með eitt hlutverk. Ríkur er hrikalega flott lag og á vel heima í græjum landsmanna. Skellið á play og hækkið í botn, þetta er banger!
Umræðan