Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson var að senda frá sér glænýtt lag og myndband sem ber heitið „Stories To Tell.”
Lagið er tekið af væntanlegri sóló plötu kappans sem er enn í vinnslu en lítur dagsins ljós á næstunni. Lagið fjallar um að trúa á eigin getu og skoða viðhorf sem maður hefur til sjálfs sín og þess sem maður gerir og hvernig það hefur áhrif á líðan og hegðun. Opna sig fyrir öllu þessu góða í lífinu og reyna að upplifa innri ró í lífsins ólgusjó. Eins og flest allir vita var Krummi í goðsagnakenndu rokk hljómsveitinni Mínus en nýja lagið er talsvert rólegra en tónlist Mínus liða.
Rödd Krumma er hreint út sagt frábær og grípur andrúmaloft lagsins hlustandann frá fyrstu nótu! „Lagið fjallar einnig um að að þiggja og hafna án eftirsjár. Vatn er líf og lífið er lyf. Hvort það sé gott eða slæmt lyf er undir okkur komið” segir Krummi að lokum. Myndbandið er virkilega flott en það er leikstýrt, tekið upp og klippt af meistara Frosta Jóni Runólfssyni. Eftirvinnsla var í höndunum á Jóni Má.
Krummi á Facebook
Krummi á Instagram
Umræðan