Tónlistarkonan Ragna Kjartansdóttir eða Cell7 eins og flestir þekkja hana var í dag að senda frá sér glænýja plötu!
Gripurinn ber nafnið Is Anybody Listening? Og inniheldur níu frumsamin lög. Ragna er mikill frumkvöðull þegar kemur að íslenskri rapp og hip hop tónlist en hún gerði garðinn frægann með goðsagnakendu rappsveitinni subterranean.
Is Anybody Listening? Er virkilega þétt plata sem hver tónlistarunnandi ætti alls ekki að láta fram hjá sér fara! Á plötunni má heyra áhrif frá Jazz, funk, soul og house tónlist sem gerir það að verkum að hvert lag er með sinn eigin stíl. Mælum eindregið með að hlusta á alla plötuna í gegn, þetta er heljarinnar ferðalag!
Cell7 á Instagram
Umræðan