The Sweet Parade er ný íslensk eins manns hljómsveit. Tónlistin er einhverskonar Indí, nýbylgju, kántrí, pop og kammer folk og fer í allar þær áttir sem að tónlistin velur sér í það og það skiptið.
Út er komin smáskífa þrjú af væntanlegri plötu, og heitir lagið Sweet parades (for Bella) The Sweet Parade er skipuð Snorra Gunnarssyni, sem að hefur komið víða við í íslenskri tónlist, meðal annars með sveitum eins og Soma, Stolið, YouYou, There Will Be Wolves og Slow Mountains.
Ljósmyndirnar sem að prýða smáskífur og plötu The Sweet Parade eru teknar af Snorra og eru partur af ljósmynda seríunni Arnarnes sem mun birtast um leið og breiðskífa The Sweet Parade kemur út seinna í sumar. Aðstoðarmaður í nýja laginu er bassaleikarinn Kristinn Jón Arnarson.
Umræðan