Guðjón Rúdolf hefur sent frá sér safnplötuna Nokkar leiðbeiningar um alþýðutónlist fyrir byrjendur. Á plötunni er að finna safn laga af plötunum Minimania, Þjóðsöngur og Regnbogi sem hafa verið ófáanlegar um nokkra hríð.
Öll lögin eru endurhljóðblönduð og tónjöfnuð og kemur platan út á vínyl í takmörkuðu upplagi en er einnig aðgengileg á helstu streymisveitum. Hægt er að nálgast plötuna í hljómplötuversluninni Lucky Records á Rauðarárstíg.
Umræðan