Það er nóg um að vera í listsköpun norðan heiða. iLo er listamannsnafn Einars Óla, en hann er nýlega fluttur í heimabæinn sinn Húsavík.
iLo vinnur að plötu um þessar mundir sem var tekin upp í Brúnum í Eyjafjarðarsveit og mun láta ljós sitt skína í haust. Sigfús Jónsson hjá Hljómbræðrum sá um upptökur. Öll lögin eiga það sameiginlegt að vera í órafmögnuðum útsetningum (unplugged). Núna á dögunum fékk Einar Óli boð um að flytja lag í Húsavíkurkirkju. Lagið heitir Still love you og verður á komandi plötu sem ber heitið Mind like a maze (unplugged), Brúnir session.
Hægt er að hlusta á flutninginn hér að neðan, en Einar fékk í lið með sér frænkur sínar Bylgju og Svövu Steingrímsdætur. Rafnar Orri Gunnarsson, sá um hljóð og mynd Við hjá Albumm hvetjum ykkur til að fylgjast með þessum efnilega listamanni.
Hægt er að sjá myndbandið HÉR
Umræðan