Dj Steinar Fjeldsted heldur uppi fjörinu á sjálandi í Garðabæ annaðkvöld, laugardag frá kl 19:00 – miðnættis.
Búist er við troðfullu húsi enda Covid á undanhaldi og eru flestir meira en til að kíkja út, borða góðan mat og hlusta á eðal tóna. Steina þekkja flestir úr hinni sívinsælu hljómsveit Quarashi og lofar hann mikið af nýrri tónlist í bland við eldri smelli. House tónlist, hip hop, lounge og soul er það helsta sem Steinar spilar en hann sækir sinn innblástur mikið til New York borgar og Tokyo.
Alls ekki láta þig vanta á þetta einstaka kvöld! Við láttum eitt gott lag og myndband fylgja með hér að neðan með hljómsveitinni Quarashi:
Umræðan