Fyrir stuttu sendi tónlistarmaðurinn Jónas Sig frá sér brakandi ferskt tónlistarmyndband við lagið Höldum Áfram. Lagið er tekið af plötunni Milda Hjartað sem kom út í lok ársins 2018.
Myndbandið var tæpt ár í vinnslu og var tekið upp einmitt á svona fallegum haustdegi og lagði línuna fyrir allt útlit og stemmninguna fyrir hönnun og útlit plötunnar sem fylgdi. “Við ákváðum síðan að þetta væri það sterkt lag og myndband að okkur langaði að bíða með það þangað til síðast og ýta þessu úr vör eftir sumarið.”
Myndbandið var unnið af Bernhard Kristni ljósmyndara og var tekið upp í sjónum og fjörunni við Þorlákshöfn á haustdögum 2018. Myndbandið var skotið við frekar vafasamar aðstæður svo ekki sé meira sagt, en Björgunarsveitin Mannbjörg sá til þess að fór vel fram á meðan Jónas og Tómas Jónsson busluðu í sjónum ásamt gömlu píanói sem þeir höfðu dröslað út í sjó meðan á tökunum stóð.
Lagið sjálft er innblásið af sígildum frasa sem komið hefur fram í fjölmörgum sönglögum tuttugustu aldarinnar. Hugmyndin að manneskjan verði að “keep on keepin’ on” varð líklega gullsleginn í höndum Bob Dylan sem setti frasann svo meistaralega inn í texta sinn við lagið “Tangled Up in Blue” af plötunni Blood on the Tracks.
Lagið Höldum áfram byggir á þessari fallegu hugmynd. Að vera manneskja er að lifa er fastur í óskiljanlegum heimi sem hefur ekkert þekkt upphaf og engan endi. Við lifum í tíma sem byrjaði hvergi og við vitum ekki hvar hann gæti endað. Það er auðvelt að upplifa sig týndan og jafnvel vonlausan. En það sem við höfum er kærleikurinn og mögulega trúin á lífið. Að halda áfram – hvað sem á dynur. Að halda áfram að halda áfram. Eins og segir í laginu.
Jónas Sig á Facebook og Instagram
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á plötuna Milda Hjartað:
Umræðan