Eftir mikla umhugsun hefur sú erfiða ákvörðun verið tekin að Músíktilraunir 2020 falla niður vegna COVID-19.
Allt frá upphafi Músíktilraunanna 1982 hafa þær einungis fallið einu sinni niður en það var árið 1984 vegna verkfalls kennara sem í ljósi núverandi aðstæðna virkar frekar litilfjörlegt.
„Við vonumst til að Músíktilraunirnar 2021 verði á sínum stað á vordögum og komi bara enn sterkari til leiks inn í tónlistarsenu landsins á sama tíma og þær fagna 40 ára tilveru sinni. Við vonum innilega að þið eigið gott tónlistarár og hlökkum mikið til að sjá ykkur á næsta ári. Með sorg en sumarsól í hjarta” – starfsfólk Músíktilrauna.
Hér fyrir neðan má sjá hljómsveitina Of Monsters and Men í Músíktilraununum árið 2010.
Umræðan